Blutwölfin
Tuesday, March 20th, 2007, 07:31 PM
Fjölgun er milli ára á fæðingum á Íslandi og er hlutfallið 51 prósent drengir og 49 prósent stúlkur. Ísland er í öðru sæti þegar kemur að frjósemi kvenna í Evrópu. Hins vegar fæðast fleiri börn utan hjónabands hérlendis en í nokkru öðru Evrópuríki. Fæðingaraldur hækkar jafnt og þétt og er nú 25-29 ára en var 20-24 ára fram til 1980.
Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar um fæðingar á Íslandi 2006.
Á síðasta ári fæddust 4.415 börn á Íslandi. Rúmlega 51 prósent voru drengir, en stúlkur tæp 49 prósent. Þetta er fjölgun frá árinu áður þegar 4.280 börn fæddust hér.
Dregið hefur úr frjósemi í öllum Evrópulöndum. Hérlendis hefur frjósemi verið fremur stöðug síðasta áratug, um 2 börn á konu. Nú er Ísland í öðru sæti með 2,07 börn miðað við 2,05 árið 2005. Þá er átt við fjölda lifandi fæddra barna á hverja konu. Einungis eitt Evrópuland er með meiri frjósemi en Ísland,Tyrkland var með frjósemi 2,2 en frjósemi hérlendis má einkum rekja til aðkomufólks.
Lestu meira hér! (http://www.visir.is/article/20070320/FRETTIR01/70320019&SearchID=73275573260645)