Blutwölfin
Saturday, December 30th, 2006, 04:31 PM
Norræn sagnaráðstefna verður haldin 15. árið í röð. Hún hefur verið haldin til skiptis í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en nú bætist Ísland í hópinn, með styrk frá Norræna menningarsjóðnum. Sjóðurinn veitti á dögunum 45.000 danskra króna til norrænnar sagnaráðstefnu sem haldin verður á Íslandi.
Fram kemur á heimasíðu Norðurlandaráðs, að norræna sagnahefðin byggi á sameiginlegum grunni og sagnahefðina megi rekja til ævafornra norrænna goðsagna, þjóðsagna og fornsagna. Sögurnar sem sagðar eru, lifa eigin lífi í þeim löndum sem þær eru sagðar í. Á ráðstefnunni verður unnið út frá því að Ísland verður nú hluti af norrænu sagnasamtökunum, sem urðu til eftir að Norðurlandaráð átti frumkvæði að því að skipuleggja norræna sagnaráðstefnu árið 1993 og var strax í upphafi styrkt af Norræna menningarsjóðnum.
Ráðstefnan verður haldin á Íslandi dagana 22. til 27. júlí og mun jafnt leikmönnum sem fagmönnum verða boðið til hennar. Fjöldi þekktra sagnamanna frá Norðurlöndum hefur þegar skráð þátttöku sína. Markmið ráðstefnunnar er að skipa Íslandi sess innan munnlegrar sagnahefðar sem hefur orðið til annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta mun Félag sagnaþula undir stjórn Sigurbjargar Karlsdóttur gera með þessari ráðstefnu, en reiknað er með að hún veki talsverða athygli.
frá Morgunblaðið (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1244360)