PDA

View Full Version : Listi yfir fáránlegustu aðgerðir feminista á Íslandi í okt-des 2005


Lundi
Wednesday, December 14th, 2005, 06:01 PM
Hehe ég rakst á þetta, fannst þetta svolítið skondið ;)

Jæja... nú er nokkuð víst að þessar feministabeyglur hafa gengið gjörsamlega fram af almenningi. Hvað kemur eiginlega næst? Ég leyfi mér að tíunda nokkra hluti hérna til að undirstrika hve veruleikafirrtur feminisminn er orðinn hjá þessum núorðið einangraða sérviskuhópi sem feministar eru orðnir.

1. Fara fram á aukinn hlut kvenna í sjónvarpi.
Nú ætla ég ekki að setja út á fjölmiðlafólk, hvorki konur né karla, en þessi krafa verður að teljast fáránleg. Í útvarpsviðtali í dag var því haldið fram að það hlyti eðlilega að vera einfalt mál að fá konu sem viðmælanda út af ákveðnu umræðuefni. Hvernig í veröldinni ætlið þið konur að standa við þetta??? Á ekki bara að klæða Halldór í pils þegar ræða á við utanríkisráðherra... nú eða kalla til aðstoðarmann framkvæmdastjóra Landsvirkjunnar ef ræða á við hann? Svo var því bætt við að konur héldu einfaldlega ekki endilega að "karlafréttir" væru fréttnæmar. Hvað er verið að biðja um? Ég sé ekki að fréttaflutningur af illa sóttum íþróttaviðburðum, bútasaum nú eða öðrum almennt séð lítt vinsælum hltum verði til að víkka sjóndeildarhringinn.

2. Setja út á hamingjuóskir íslensku þjóðarinnar til Unnar Birnu.
Ég hélt hreinlega að þetta væri bara grín þegar þetta kom upp. Það má vel vera að fyrirsætuheimurinn sé ekki farsældarveröld fyrir alla þátttakendur (já það eru líka til karlmódel) en hvernig væri að samgleðjast með þessari stórglæsilegu stúlku og fagna hennar sigri? Þurfið þið rauðsokkurnar að grenja yfir velgengni annarra? Mér þykir engu líkara en að þarna sé fátækur að öfunda ríkan. Íslendingar hafa almennt fagnað þessum sigri hennar og líta á hana sem stórglæsilegan kandídat fyrir Íslands hönd. Við Íslendingar biðjum því feminista að skemma ekki ánægjustund okkar né Unnar Birnu og fjölskyldu hennar með fáránlegri og skammarlegri framkomu. (engu munar að þið kallið hana hreinlega h**u nú eða gle**konu).

3. Algjört aðgerðarleysi gagnvart dómi hæstaréttar
Feministar starfa í skjóli jafnréttisstefnu kynjanna. Hvað varð um jafnréttið þegar Hæstiréttur ályktaði að barn væri betur komið hjá móður sinni en föður? Feministar eru nefnilega eiginhagsmunaflokkur sem er einungis annt um sína eigin og ef eitthvað er þá nota þær karlmenn í starfi sínu. Væri ekki ráðlegra að sýna jafnrétti í verki og fordæma þetta álit Hæstaréttar eða eru viðbragðshópar feminista einungis til reiðu þegar ráðist er gegn konum? Ég bara spyr.



Feministar eru hvattir til að hittast við rætur Vatnajökuls næstu kvöld til að mótmæla þessum skrifum. ( :D )


http://www.myweb.is/feministar/

Náttfari
Wednesday, December 14th, 2005, 06:42 PM
Haha, þetta er hárrétt. :rofl:

Lundi, verður þú á Íslandi þann 17. desember? Sendu mér einkaskilaboð.