Eikþyrnir
Monday, November 29th, 2004, 09:57 PM
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagðist í dag vera „mjög vonsvikinn og undrandi“ yfir því að sonur hans, Kojo Annan, hefði fengið greiðslur allt fram í febrúar á þessu ári frá fyrirtæki sem þátt tók í „olíu fyrir mat“ áætlun SÞ. Fyrirtækið er nú undir smásjá ýmissa eftirlitsstofnana fyrir meinta spillingu.
Annan sagði við blaðamenn að honum hefði skilist að greiðslur til Annans yngri hefðu hætt að berast árið 1998 „og ég hafði ekki gert ráð fyrir að samskiptin héldu áfram“.
Talsmaður SÞ, Fred Eckhard, sagði aftur á móti á föstudaginn að lögmaður Kojos hefði tjáð óháðri nefnd sem skipuð hefði verið til að rannsaka meinta spillingu í kringum áætlunina, að hann hefði fengið greiðslur allt fram í febrúar á þessu ári. Kojo vann áður hjá fyrirtækinu, sem er með höfuðstöðvar í Sviss og heitir Cotecna.
SÞ réðu Cotecna 31. desember 1998 til að hafa eftirlit með því að matvæli, lyf og aðrar vörur sem fluttar væru inn féllu undir skilgreiningu á þeim vörum sem mætti flytja inn til Íraks samkvæmt áætluninni.
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1114401