PDA

View Full Version : Nýr Samstarfsráðherra á Íslandi


Dagna
Saturday, February 7th, 2009, 04:30 AM
Nýr samstarfsráðherra á Íslandi

Ný ríkisstjórn tók til starfa á Íslandi sunnudaginn 1. febrúar og eins og búist var við er Jóhanna Sigurðardóttir úr Samfylkingunni forsætisráðherra. Búið er að ráðstafa öðrum ráðherrastólum og verður Kolbrún Halldórsdóttir Vinstri hreyfingunni grænu framboði næsti samstarfsráðherra.

Kolbrún hefur setið á alþingi síðan árið 1999 fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð.

Fyrir utan að vera samstarfsráðherra mun Kolbrún einnig gegna embætti umhverfisráðherra, en hún hefur mikla þekkingu á málaflokknum eftir að hafa setið í umhverfisnefnd Alþingis í nær áratug.

Kolbrún hefur, eins og flokksbróðir hennar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, miklar efasemdir um mögulega aðildarumsókn Íslendinga að ESB.

- Nú snúast hlutirnir um að bjarga þjóðinni og efnahagi Íslands og það gerum við án ESB og evrunnar. Við verðum að gera það með íslenskum krónum. Það verður erfitt, en evran bjargar engu, sagði Kolbrún við Fagpressebureauet í Danmörku í síðustu viku.

Kolbrún hefur setið í menningarnefnd Norðurlandaráðs síðan 2008 og verið fulltrúi í sendinefnd Íslendinga í Norðurlandaráði frá árinu 2007, en hún er fulltrúi í flokkahópi vinstrisósalistískra grænna.

Hún sat í umhverfis- og auðlindanefnd frá janúar 2008 til janúar 2009 og hefur verið fulltrúi í menningar- og menntanefnd frá því nú í janúar 2009.

http://www.norden.org/webb/news/news.asp?lang=5&id=8385